Velkomin í stuðið

Gat ekki sagt nafnið mitt þegar ég var lítil og kaus því að kalla mig Bakkabakki

föstudagur, nóvember 10, 2006

Skórnir á hilluna

Ákvað í gær að setja skóna á hilluna þetta tímabilið, á reyndar eftir að velja hillu. Er að hugsa um að snúa mér að meðgöngujóga í staðinn. Hugsa að það henti betur heldur en endalaus hopp og skutlur í gólfið. Brjóstin snerta nú samt sennilega gólfið á undan bumbunni þar sem þetta eru jú fyrirmyndar brjóst og bumban ekkert orðin neitt rosaleg ;)

Annars er bara nóg að gera. Skóli þessa helgi og handleiðsla eftir vinnu alla mánudaga fram að jólum. En það er ýmislegt sem maður leggur á sig til að auka við sig þekkingu.

Góða helgi og passið ykkur í hálkunni!

mánudagur, nóvember 06, 2006

Ferðasagan

Jæja þá gef ég mér loksins tíma til að segja frá ferðinni okkar múttu til Minneapolis.

  • Vorum teknar í security check á Keflavíkurvelli. Við vorum 15 mín í checkinu og í innritunni og komust svo í fríhöfnina strax meðan hinir voru rúma klst. í röðinni eftir innrituninni. Þannig að ég mæli sko með security check.
  • Við fengum bestu sætin í vélinni (þökk sé security check) sátum tvær, höfðum nóg pláss fyrir fæturna og gátum hallað sætunum vel aftur því það var langt í næstu sætaröð.
  • Þurftum að bíða klst. eftir tómu töskunum okkar á flugvellinum úti, Kaninn e-ð lengi að drösla þeim á færibandið.
  • Létum hótelrútuna bíða eftir okkur í 10 mín þar sem við héldum að það ætti að vera kona sem væri að keyra rútuna.
  • Fengum fínt herbergi.
  • Drifum okkur í Albertvill um leið og við vöknuðum daginn eftir þar sem ég eyddi næstum öllum gjaldeyrinum mínum.
  • Fórum í Target á öðrum degi þar sem ég kláraði gjaldeyrinn minn og þurfti að nota kortið mitt. Kíktum líka í Mall of America þar sem ég gat eytt enn meiru.
  • Fórum í Mall of America á þriðja degi þar sem ég ætlaði nú ekki að eyða neinu en gerði það samt.
  • Síðasta daginn fórum við aftur í Target þar sem ég ætlaði heldur ekki að eyða neinu en gerði það samt.
  • Átti auðvelt með að tapa mér í búðunum og langaði að kaupa helling handa krílinu en ákváð að láta það bíða þar sem við vitum ekki kynið og fáum auk þess fullt lánað.
  • Lentum í smá ævintýri þegar við vorum að tékka okkur inn úti. Græna kortið, til hvers?
  • Góð ferð í alla staði en finnst ég samt ekki hafa verslað mikið þegar allt er komið upp úr töskunum.