Velkomin í stuðið

Gat ekki sagt nafnið mitt þegar ég var lítil og kaus því að kalla mig Bakkabakki

fimmtudagur, ágúst 23, 2007

Orlando

Já já haldið þið ekki bara að við Sunna og mamma séum á leiðinni til útlanda : ) Við ætlum að drífa okkur í 8 daga verslunar- og skemmtiferð til Orlando 11.-19. september. Birna og co eru líka að fara í sömu ferð og þau eru víst búin að fara oftar en einu sinni svo þau geta bent okkur á réttu staðina til að versla. Grjóni verður heima í skólanum og að vinna svo ég geti eytt meiru úti ; )

Annars voru við mæðgur að koma úr 2 vikna fríi frá Akureyri og höfðum það alveg rosalega gott. Reyndar fékk Sunna svakalega mikið kvef og var hundveik síðustu helgi en er öll að koma til. Við byrjum svo í ungbarnasundi á mánudaginn.