Velkomin í stuðið

Gat ekki sagt nafnið mitt þegar ég var lítil og kaus því að kalla mig Bakkabakki

laugardagur, desember 15, 2007

Leikur á morgun

Á morgun er síðasti leikurinn okkar fyrir jól. Hann verður í Digranesi kl. 13 á móti Fylki. Þetta verður líklega frekar furðulegt hjá okkar liði þar sem við verðum án uppspilara og misstum æfingartímann okkar í dag vegna jólasýningar hjá fimleikunum hjá Gerplu svo við höfum ekkert getað æft "nýja kerfið" okkar. En þetta ætti að verða fínasta áskorun fyrir hausinn á okkur þá meina ég að ef við getum höndlað þetta þá ættum við að geta höndlað nánast allt.

Annars styttist alltaf í jólin ekki nema 9 dagar í þau. Um jólin og eftir áramót verður stíft æfingarprógramm hjá landsliðinu svo það verður ekkert legið í leti og étið um jólin.

sunnudagur, desember 09, 2007

3-1 sigur

Vorum að keppa í dag við Þrótt-rvk sem er eiginlega fyrsti leikurinn minn í deildinni í vetur, svona fyrir utan það að passa pláss á bekknum í einum leik. Ég spilaði á miðjunni sem ég hef ekki gert síðan ég var unglingur og lítið sem ekkert smassað úr þeirri stöðu síðan. Frekar lítið (a.m.k. fyrir mig) að gera á miðjunni nema hoppa í blokk og þykjast ætla að smassa sem á ekki alveg nógu vel við mig. Ég er nú samt ákveðin í að gefa þessari stöðu smá séns, æfingin skapar jú meistarann. Allt betra en að verma bekkinn.