Velkomin í stuðið

Gat ekki sagt nafnið mitt þegar ég var lítil og kaus því að kalla mig Bakkabakki

föstudagur, nóvember 10, 2006

Skórnir á hilluna

Ákvað í gær að setja skóna á hilluna þetta tímabilið, á reyndar eftir að velja hillu. Er að hugsa um að snúa mér að meðgöngujóga í staðinn. Hugsa að það henti betur heldur en endalaus hopp og skutlur í gólfið. Brjóstin snerta nú samt sennilega gólfið á undan bumbunni þar sem þetta eru jú fyrirmyndar brjóst og bumban ekkert orðin neitt rosaleg ;)

Annars er bara nóg að gera. Skóli þessa helgi og handleiðsla eftir vinnu alla mánudaga fram að jólum. En það er ýmislegt sem maður leggur á sig til að auka við sig þekkingu.

Góða helgi og passið ykkur í hálkunni!

7 Comments:

  • At 10 nóvember, 2006 18:09, Anonymous Nafnlaus said…

    Já mér líst vel á það að þú leggir skóna á hilluna.. ég get allveg lánað þér hillu ef að þér vantar sko ;)

    Þegar ég heyrði þetta í fyrsta skipti þá var ég í 4 bekk eða eithvað og hélt á tímabili að skórnir sem að voru á "hillunum" bekkjunum í íþróttahúsinu væru skór frá fólki sem að væri hætt að koma þangað ;)

     
  • At 10 nóvember, 2006 20:50, Anonymous Nafnlaus said…

    Er það ekki nokkurn veginn rétt? Fólkið er allavega hætt að nota skóna á æfingum/leikjum ;)

     
  • At 11 nóvember, 2006 15:21, Anonymous Nafnlaus said…

    einmitt.... mjög jöfn og falleg brjóst þarna á ferð ;-)

     
  • At 13 nóvember, 2006 19:21, Anonymous Nafnlaus said…

    Já er ekki kominn tími að leggja skóna á hilluna í smá tíma....:-) Enda færðu svo rosalega gott í staðinn. Veit samt að þetta er ábyggilega erfitt fyrir þig. Gangi þér vel í náminu og njóttu handleiðslunnar.

     
  • At 13 nóvember, 2006 21:48, Anonymous Nafnlaus said…

    Já, það er betra að labba í hálkunni á sokkunum og geyma skóna bara í hillunni!!!
    Kveðja, Valdís Brá.

     
  • At 14 nóvember, 2006 13:18, Anonymous Nafnlaus said…

    Eigum við að ræða brjóstin eitthvað nánar...ég get rétt bráðum slengt mínum upp á öxl...ég skal segja þér það !

     
  • At 15 nóvember, 2006 15:45, Anonymous Nafnlaus said…

    Það var nú auðveldara en ég átti von á að hætta í blakinu.
    Birna í sambandi við brjóstin þá getum við sko rætt endalaust um þau en ætli sú umræða eigi nokkuð heima hér.

     

Skrifa ummæli

<< Home