Velkomin í stuðið

Gat ekki sagt nafnið mitt þegar ég var lítil og kaus því að kalla mig Bakkabakki

föstudagur, október 13, 2006

Jákvæður umferðarhnútur

Það er nú ekki á hverjum degi sem umferðahnútar borgarinnar koma sér vel. Í dag var ég að keyra Miklubrautina um kl. 16 þegar allt í einu er bíbbað þvílíkt. Ég lít til hliðar og sé þar Birnu. Þar sem umferðing gengur svona hægt fyrir sig gátum við planað morgundaginn, hvar og hvað við ætlum að borða o.þ.h. Það skondnasta við þetta allt saman var að ég var nýbúin að senda henni sms þegar hún birtist í bílnum við hliðina á mér. Gaman að þessu.....

Annars er nóg að gera í skólanum, íbúðinni og blakinu. Skóli á morgun, klára að flísaleggja baðið, og sjóvarpsleikur á laugardaginn eftir viku á móti Þrótti RVK. Þannig að það er nóg að gera og ansi langt síðan ég hef fengið fríhlegi þar sem er ekkert um að vera.

3 Comments:

  • At 16 október, 2006 13:00, Anonymous Nafnlaus said…

    Það er náttúrulega bara fyndið að geta rætt málin svona í umferðinni! Ekki það að mér leiðast umferðarhnútar yfirleitt.

     
  • At 16 október, 2006 13:03, Anonymous Nafnlaus said…

    Hehehe, bara töff :-)

     
  • At 16 október, 2006 16:24, Anonymous Nafnlaus said…

    hahaha..já þetta var ekkert smá fyndið!! ;) Og það besta var að það var Gunni sem tók eftir þér ;)

     

Skrifa ummæli

<< Home