Velkomin í stuðið

Gat ekki sagt nafnið mitt þegar ég var lítil og kaus því að kalla mig Bakkabakki

föstudagur, febrúar 17, 2006

Bleik sem svín

Ég asnaðist í ljós í fyrradag og er búin að vera á litin eins og svín síðan, reyndar svolítið mikið bleikari og jafnvel út í rautt. Ég er ekki viss um að ég treysti mér aftur í svona bekk, var búin að smyrja á mig sólarvörn og alle græjen. Ég hef e-n veginn aldrei verið neitt mikið fyrir bleikt né rautt og svo klæjar mig mig líka mikið í þessa liti, þessi hvíti klæjar ekki eins mikið. Best að halda sig bara við þetta hvíta. Sem minnir mig á það að stelpurnar eru að koma í menningarferð í borgina og verða yfir helgina. Það verður gaman að mála borgina rauða, ég ætti nú að fara létt með það. Stefnan er tekin á Eurovision kvöld með e-u fljótandi. Ég ætla að splæsa atkvæði á Sylvíu Nótt, Til hamingju Ísland...

Góða helgi!!

8 Comments:

  • At 17 febrúar, 2006 18:35, Anonymous Nafnlaus said…

    Áfram Sylvía!!!!

     
  • At 18 febrúar, 2006 19:46, Blogger Eygló said…

    Skemmtið ykkur vel og skiliði kveðju til allra frá mér.

     
  • At 20 febrúar, 2006 10:12, Anonymous Nafnlaus said…

    Við skemmtum okkur svo sannarlega vel :-)
    Takk fyrir helgina kappi!!

     
  • At 21 febrúar, 2006 12:29, Anonymous Nafnlaus said…

    Já takk sömuleiðis fyrir helgina, þetta var algjör snilld!! ;o) Annars spurði Emil af hverju þú hefðir ekki bara komið heim með mér... hehe ;oD Snilld annars að hitta fræga, það segiru satt!! ;o)

     
  • At 22 febrúar, 2006 12:27, Anonymous Nafnlaus said…

    SNILLDAR helgi :) Einu orði sagt. Knús fyrir alles

     
  • At 22 febrúar, 2006 12:28, Anonymous Nafnlaus said…

    og já þetta er ég BB

     
  • At 23 febrúar, 2006 08:14, Anonymous Nafnlaus said…

    Já þetta var snilld. Takk allar fyrir djammið!
    Laufey! Vildi Emil fá að liggja á fleirum í liðinu? ;) hehehehe.....

     
  • At 27 febrúar, 2006 19:19, Anonymous Nafnlaus said…

    jújú, hann fílar það nú bara... við vitum það allar!! Hehehe... ;oD

     

Skrifa ummæli

<< Home