Velkomin í stuðið

Gat ekki sagt nafnið mitt þegar ég var lítil og kaus því að kalla mig Bakkabakki

fimmtudagur, janúar 25, 2007

Tja...

E-n veginn er ég hætt að nenna að bulla e-ð hingað inn og því borgar sig ekkert að hafa stutt á milli færslna.

Þessa dagana er handboltinn það sem fólk talar um og fylgist með og er ég engin undantekning þar á. Bara snilld að fylgjast með strákunum okkar eins og þeir eru kallaðir þegar gengur vel.

Svo verður nóg að gera um helgina. Stjáni og co koma í mat annað kvöld, alltaf gaman að hitta þau. Er að passa Söru á laugardagskvöldið meðan hjónin fara í leikhús. Amma kemur svo á sunnudaginn og við gerðum ansi sniðugar og fengum Eygló og Binna til að bjóða okkur í mat. Ég ætti ekki drepast úr matarskorti enda hef ég svo sem aldrei haft áhyggjur af því.

Bumban stækkar og stækkar og fólk hætt að spyrja hvort ég hafi tapað mér í nammiáti og farið að spyrja hvenær ég eigi von á mér. Hreyfingarnar hjá krílinu verða líka alltaf kröftugri og kröftugri og gott ef ég hafi ekki fundið fyrir litlum táslum um daginn, bara yndislegt....

5 Comments:

  • At 25 janúar, 2007 23:21, Anonymous Nafnlaus said…

    Já það er sko yndislegt að finna fyrir hreyfingunum. Sumir tala um að sakna þeirra eftir að barnið er fætt, þ.e að finna ekki hreyfingu inn í sér. Ég hins vegar saknaði þess aldrei því í staðinn fyrir að upplifa þessar hreyfingar var ég með Söru hjá mér. Takk fyrir rauðvínið:) Færð það á laugardaginn, promise:)

     
  • At 26 janúar, 2007 08:47, Blogger katalitla said…

    Æi þetta er svo krúttlegt.... vonandi gengur áfram vel :-)

     
  • At 26 janúar, 2007 10:10, Anonymous Nafnlaus said…

    Hvað með bumbumyndir?? Er verið að leyna manni einhverju ?hehehe...
    Það verður sko keppni næstu helgi (2.feb.) þegar ég kem suður...er þa´ggi?

     
  • At 26 janúar, 2007 11:46, Anonymous Nafnlaus said…

    Æ hvað þetta er æðislegt :D Hlakka til að sjá þig fljótlega... til að sjá bumbuna.. :D

     
  • At 29 janúar, 2007 19:47, Anonymous Nafnlaus said…

    Lóa það er gott að rauðvínið sé komið í hús þar sem ég hef ekkert með það að gera :)
    Já ég held að það verði líka alveg frábært að finna hreyfingarnar þegar maður er komin með krílið í hendurnar og tengja þær við hreyfingarnar sem það gaf frá sér í bumbunni.
    Það verður sko keppni Birna! Ef þú bara þorir ;) Tölvan mín er biluð svo ég get ekki brennt myndir annars væri ég búin að henda inn nokkrum.

     

Skrifa ummæli

<< Home