Velkomin í stuðið

Gat ekki sagt nafnið mitt þegar ég var lítil og kaus því að kalla mig Bakkabakki

mánudagur, júlí 03, 2006

Sjálfræðissvipt

Þvílík snilld sem laugardagskvöldið var. Það var smá teiti í melnum þar sem var fámennt en góðmennt. Við Kata skelltum í okkur nokkrum köldum og fengum Lóu svo til að skutla okkur niður í bæ. Byrjuðum á Hressó þar sem við hermdum eftir öðru fólki dansa með miklum tilþrifum. Þegar við vorum búnar að fá nóg af því drifum við okkur á Celting með stuttu stoppi á Kofanum. Á Celtic rifumst við heilmikið við þroskaþjálfa sem hélt því ekki fram að Kata væri þroskaheft en ég held að eftir nokkrar mínútur hafi okkur tekist að sannfæra hana um annað. Síðan voru þarna 4 gaurar hver æstari í Kötu sem voru farnir að taka númer til að komast með henni/okkur heim. Ég varð auðvita að fara með þeim heim þar sem Kata var sjálfræðissvipt og bæði í liðveislu og fylgd með mér. Þeir tóku ekki illa í það þangað til einum fannst þetta farið að verða heldur ýkt. Þegar við vorum þreyttar á þessum gaurum og þroskaþjálfinn hættur að nenna rífast við okkur ákváðum við að kíkja aftur á Hressó. Síðan var lagt í hann heim, hélt ég ætti heima mjög stutt frá bænum en ef maður fer lengstu mögulegu leiðina þá er það ekki svo stutt. Þetta var bara snilldin ein!!

2 Comments:

  • At 04 júlí, 2006 08:21, Anonymous Nafnlaus said…

    Þið eruð svooooo miklir sullumbullar ;) hehehe... snilld samt að heyra í ykkur..hefði verið gaman að rugla með ykkur en við gerum bara meira af þvi þarnæstu helgi ;)

     
  • At 04 júlí, 2006 08:24, Anonymous Nafnlaus said…

    Já þvílíkur klassi.... takk takk takk :-)

    Spurning um að taka liðveisluna á þetta eftir tvær vikur.... klikkar ekki!!! Hlakka til, hlakka til :-)

     

Skrifa ummæli

<< Home