Velkomin í stuðið

Gat ekki sagt nafnið mitt þegar ég var lítil og kaus því að kalla mig Bakkabakki

mánudagur, maí 29, 2006

Daddara

Það er orðið svo stutt í að við flytjum og ég orðin svo spennt að ég er næstum því hætt að sofa á næturna. Næstum allt dótið að vera komið í kassa og klárt í flutninga. Við erum búin að fá fullt af fólki sem ætlar að hjálpa okkur að flytja þannig að við verðum ekki lengi að hendast með þetta allt upp á 4. hæð. Mamma og pabbi koma svo á föstudaginn og stoppa í viku og á meðan verður íbúðin tekin í gegn, máluð og baðherbergið endurnýjað. Erum búin að vera að skoða flísar á baðherbergið, wc, bað, vask og sem betur fer þá virðumst við vera með mjög svipaðan smekk hvað það allt varðar.
Ég veit ekki hvenær við náum að halda innflutningspartý, mögulega eftir að við komum að utan. Betra er seint en aldrei, ekki satt??
Birna þú heldur áfram að vinna í þessu með ferðina..............

7 Comments:

  • At 30 maí, 2006 10:47, Anonymous Nafnlaus said…

    Djö.....það er bara laust út, ekki til baka fyrr en viku seinna...Tár, tár, tár...Þið verðið bara að skemmta ykkur tvöfalt vel ;) Og koma svo aftur út með mér og Kötu í ágúst :)

     
  • At 30 maí, 2006 13:49, Anonymous Nafnlaus said…

    ég hélt að þú værir að beila á mér stelpa!!!
    Allir velkomnir með til Barcelona í ágúst :-) ... vona að það endi ekki með að ég fari ein þangað (týpískt samt þar sem ég á enga vini!!)

    Til hamingju með að vera að flytja og þið látið vita hvenær innflutningsteitið er, við Birna skellum okkur þá í smá leiðangur suður, ekki satt??

     
  • At 30 maí, 2006 15:06, Anonymous Nafnlaus said…

    Barcelona segir þú.... ég er til. Spurning hvað verskið leyfir.
    Auðvita læt ég vita hvenær partýið verður og að sjálfsögðu verðið þið þá að koma í menningarferð í borgina.

     
  • At 30 maí, 2006 15:08, Anonymous Nafnlaus said…

    Birna, þið verðið þá bara tvær vikur úti ;) Það væri svo gaman að fá ykkur með!

     
  • At 31 maí, 2006 12:24, Anonymous Nafnlaus said…

    ég er byrjuð að vinna í bankanum þannig að nú get ég bara hreinlega farið að fylgjast með :D Hva segiru, eruði að fara út?? Stuð stuð!!:D Og gangi ykkur rosa vel að flytja og góða skemmtun við að gera allt flott í næstu viku:)

     
  • At 01 júní, 2006 14:32, Anonymous Nafnlaus said…

    Nei Kata...ég beila ekkert á þér....nema ferðin verði ógó dýr ! En því miður get ég ekki fengið frí í 2 vikur í löggunni...þannig þið komið bara aftur með okkur í ágúst;) !

     
  • At 04 júní, 2006 21:43, Anonymous Nafnlaus said…

    hvahh bara hópferðir út...ég er til í ágúst:o)

     

Skrifa ummæli

<< Home