Velkomin í stuðið

Gat ekki sagt nafnið mitt þegar ég var lítil og kaus því að kalla mig Bakkabakki

miðvikudagur, júní 21, 2006

Komin heim

Jæja þá er maður kominn heim úr alveg hreint frábærri ferð frá Portúgal. Ætluðum að hafa þetta algjöra afslöppun en svo var svo margt spennandi í boði sem við gátum ekki látið fram hjá okkur fara. Fórum í skoðunarferð til Sevilla á Spáni, vatnsrennibrautagarð, á ströndina, nautaat, í siglingu, á festival þar sem James Blunt, Melanie C og Black eyed pice voru m.a. að spila og kíktum aðeins á næturlífið. Þetta var alveg frábært en aðeins of stuttur tími, vika í viðbót hefði verið fínt. Nautaatið var algjör snilld. Nautaatararnir voru á hestum, fyrst einir og svo saman. Nautið er ekki drepið en það munaði nú ekki miklu að nautið hefði náð að drepa nokkra af þeim sem voru að reyna að stoppa nautið af í lokinn. Ótrúlegar aðferðir sem þeir beita til að ná nautinu eftir allt atið. Þeir eru ca. 10 sem stökkva á hausinn á því og svo er einn sem rífur í halann síðan hleypa þeir inn nautum með bjöllum um hálsinn og öllum smalað saman og út af vellinum. Festivalið var magnað, varð að kaupa mér diskinn með Mel C, James Blunt var líka helv.... góður.

4 Comments:

  • At 21 júní, 2006 23:40, Anonymous Nafnlaus said…

    Nautið var drepið þar sem við Jóhann fórum í nautaat. Reyndar alveg mörg naut drepin....en það var í Madrid. Kannski mismunandi milli borga? Eða er búið að banna nautadráp?

     
  • At 22 júní, 2006 08:12, Anonymous Nafnlaus said…

    frábær ferð greinilega.. velkomin heim :-)

     
  • At 22 júní, 2006 08:43, Anonymous Nafnlaus said…

    Það er held ég bara mismunandi milli landa hvort nautið sé drepið eða ekki. Það er ekki búið að banna nautadráp, allavega fáum við ennþá nautakjöt.... hehehe smá útúrsnúningur

     
  • At 22 júní, 2006 12:30, Anonymous Nafnlaus said…

    velkomin heim skötuhjú:)

     

Skrifa ummæli

<< Home