Husholdningsfilm
Maður sér ýmislegt spennandi þegar maður fer í ræktina. Fór í gær og þegar ég var að dressa mig upp í búningsklefanum voru þar tvær svaka skvísur, ljósabrúnar, með langar steyptar franskar neglur, sílikonbrjóst, sítt ljóst hár og í þröngum æfingarfötum. Allt í einu sé ég hvar ein rífur upp bolinn sinn, setur buxurnar neðar og byrjar að vefja plastfilmu utan um mittið á sér og þegar hún var búin tók hin við og setti utan um sig. Hvað er málið, til hvers er þetta gert?? Allavega var þetta e-ð alveg nýtt fyrir mér og veit ekki hver tilgangurinn, missti næstum augun úr mér.
Síðan er maður bara farin að fyllast spenningi fyrir helgina, Gagga-reunion. Ekki nema 10 ár síðan maður hitti flesta af þessum krökkum sem voru með manni í skóla þannig að það verður spennandi að sjá liðið aftur. Fer norður á morgun en er svo sennilega strandaglópur fyrir norðan. Þannig að ef þið vitið um e-n sem er með laust pláss suður á sunnudaginn þá megið þið endilega láta mig vita. Verð að komast aftur suður á sunnudaginn þar sem ég fer í vinnu á mánudaginn.

3 Comments:
At 14 júlí, 2006 10:28,
Nafnlaus said…
Dísús! Greinilega langt síðan ég hef farið í ræktina! Góða ferð norður skvís:) Það hlýtur einhver af þessu gagga fólki að geta reddað þér aftur suður;)Sjáumst í kvöld!!!
At 14 júlí, 2006 11:05,
Nafnlaus said…
Jiii ertu ekki að grínast með filmuna???? Ja...þetta hefur Bibban ekki gert...hlýtur að vera eitthvað GLÆnýtt...mohahahaha...
Testum þetta um helgina..
...hlakka til að sjá ykkur
At 18 júlí, 2006 20:26,
Eygló said…
Hmmm... maður á víst að grennast enn meira á því... Til hamingju með að hafa fengið styrk fyrir náminu, svo það á bara að setjast aftur á skólabekk.
Skrifa ummæli
<< Home