Velkomin í stuðið

Gat ekki sagt nafnið mitt þegar ég var lítil og kaus því að kalla mig Bakkabakki

þriðjudagur, apríl 25, 2006

Litli trommarinn

Var í sælunni fyrir norðan um helgina. Það var bara æðislegt, rólegt og notalegt. Við Hanne borðuðum saman á laugardaginn og fengum okkur nokkra öl, kíktum svo til Hörpu þar sem Konni frændi mætti svo á staðinn. Við tókum eitt lag á trommusett litla trommarans hennar Hörpu áður en haldið var á stað í bæinn. Veit ekki hvað nágrönnunum fannst um lagið en Hörpu fannst það a.m.k. ekki skemmtilegt. Hanne varð bara helv... hress svona miðað við fyrsta djamm eftir barnsburð. Veit ekki hvernig sunnudagurinn var hjá henni. Bærinn var vægast sagt bara nokkuð dauður, kíktum á flesta staðina og ég held að mesta fjörið hafi verið í búllunni sem við keyptum okkur Búkollu. Nammi namm....

5 Comments:

  • At 25 apríl, 2006 20:34, Anonymous Nafnlaus said…

    Sunnudagurinn var bara ótrúlega fínn miðað við allt, svolítill hausverkur en ekkert til að kvarta yfir ;o)
    Hanne

     
  • At 26 apríl, 2006 08:22, Anonymous Nafnlaus said…

    Já auðvitað var bærinn frekar líflaus þar sem bæði ég og Birna vorum fyrir sunnan!!

    ... trommusttið já

     
  • At 26 apríl, 2006 12:14, Anonymous Nafnlaus said…

    Einmitt það sem ég ætlaði að segja ;) Hvernig dettur þér í hug að velja þessa helgi til að koma norður....heheheh;)

     
  • At 26 apríl, 2006 18:26, Blogger Eygló said…

    Velkomin aftur á djammið Jóhanna!

     
  • At 27 apríl, 2006 08:16, Anonymous Nafnlaus said…

    Stelpur þið eruð svo einfaldar ;) Auðvita kom engin önnur helgi til greina þar sem þið tvær, Birna og Kata, voruð fyrir sunnan ;) tíhí....

     

Skrifa ummæli

<< Home