Velkomin í stuðið

Gat ekki sagt nafnið mitt þegar ég var lítil og kaus því að kalla mig Bakkabakki

sunnudagur, mars 12, 2006

Tap

Ja hérna hér.... Við töpuðum auðveldlega á móti Þrótti RVK í gær í undanúrslitunum í bikarnum. Við hreinlega færðum þeim sigurinn á silfurfati. Annað hvort gáfum við allt í leikinn eða ekki neitt. Fyrstu tvær hrinurnar voru skemmtilegar og spennandi en síðustu tvær hörmung. Við tókum ekkert á móti og fengum því engin sóknartækifæri. Bömmer......

Ég er að fara að drífa mig í Kolaportið finna flott outfit fyrir árshátíðina ; ) Síðan er stefnan tekin í kaffi til Kittý og Lalla þar sem drengurinn er að fara að halda upp á afmælið sitt. Kittý er víst búin að vera dugleg að baka svo ég er orðin ansi spennt.

Það er búið að panta flugið út til Englands, við förum út 13. apríl og heim aftur 16. Eygló er ekki spurning um að við mælum okkur mót úti ef það er e-r möguleiki? Ég skal láta þig vita hvar við verðum þegar ég veit e-ð meira um ferðina.

4 Comments:

  • At 12 mars, 2006 12:31, Anonymous Nafnlaus said…

    já þetta var alveg verðskuldað skot þó meira hefði verið:D

     
  • At 13 mars, 2006 18:56, Blogger Eygló said…

    Að sjálfsögðu. Allt að gerast... Kata og Bjössi koma og Binni og Sverrir, það verður glatt á hjalla í London :)

     
  • At 14 mars, 2006 16:26, Anonymous Nafnlaus said…

    Hva....tjellan að fara til Englands??Hvað að gera??Keppa?

     
  • At 15 mars, 2006 08:58, Anonymous Nafnlaus said…

    Það væri já algjör snilld ef við myndum finna allar tíma til að hittast úti.

     

Skrifa ummæli

<< Home