Velkomin í stuðið

Gat ekki sagt nafnið mitt þegar ég var lítil og kaus því að kalla mig Bakkabakki

miðvikudagur, ágúst 24, 2005

Allt að gerast þessa dagana

Við buðum í íbúð fyrir helgi í vesturbæ Reykjavíkur og svo skrifaði eigandi undir á mánudaginn. Við vorum rosa kát með það og brunuðum strax í bankann til að fá greiðslumat. Vorum hin hressustu og smjöðruðum eins og við gátum við starfsfólkið. Kemur í ljós seinna í dag hvort það hafi dugað. Íbúðin er laus og við ættum að fá hana um leið og bankinn er búinn að sínu. Við erum komin með leigendur og þetta er e-n veginn allt að ganga upp. Ætlum að leigja hana í nokkra mánuði áður en við fytjum inn.
Við Lubba byrjuðum í ræktinni á mánudaginn, tókum vel á því og erum búnar að vera óstöðvandi síðan.
Fór svo í atvinnuviðtal á þriðjudaginn og fæ að vita í lok vikunnar hvort ég verði ráðin. Þannig að nú borgar sig að krossa fingur.
Svo er Nígeríuferðin á laugardaginn. Órtúlegt... er varla að fatta það að ég sé að fara til Afríku og Nígería er ekki nema 6 fátækasta land í heimi.

6 Comments:

  • At 24 ágúst, 2005 13:25, Anonymous Nafnlaus said…

    Úff allt að gerast hjá þér Karen, ég krossa putta fyrir þessu öllu hjá þér,, hey vantar liðið ekki sálfræðing með til Nígeríu, öll alvöru lið hafa einn slíkann ekki satt???????

     
  • At 24 ágúst, 2005 20:41, Anonymous Nafnlaus said…

    Vá maður..allt að gerast hjá þér elskan..maður má ekki skreppa á Kárahnjúka þá bara gerist allt;o) hehe innilega til hamingju með þetta skötuhjú:o* eigið allt það bestasta skilið:o) og góða ferð til Nigeríu..reyni að hringja í þig áður en þú ferð...svo framarlega sem að ég get talað..:o/ sárþjáð í hálsinum í augnablikinu..en þetta kemur allt með kalda ísnum;o) bið að heilsa Grjóna

     
  • At 24 ágúst, 2005 23:33, Anonymous Nafnlaus said…

    Ég Þarf að koma í fræðslu til þín hvernig þið hafið efni á íbúð í Vesturbænum. Mig langar að kaupa íbúð en hef engan veginn efni á því.

     
  • At 25 ágúst, 2005 10:00, Anonymous Nafnlaus said…

    Innilega til hamingju með þetta allt :-)
    Skemmtu þér svo vel í Afríku stelpa!!

    Kata

     
  • At 25 ágúst, 2005 23:20, Anonymous Nafnlaus said…

    Söss...vonandi reddast íbúðarmálin ;) Og jóóóó nú verður sko tekið á því í klóruleik á HILTON!!!! Long time skilurðu....hahahahahaha....

     
  • At 26 ágúst, 2005 13:05, Anonymous Nafnlaus said…

    Þakka ykkur öllum fyrir :)
    Já Lóa ekkert mál ég skal taka þig í smá fræðslu, jafnvel fría ;)
    Aldrei að vita Birna nema það verði tekið vel á því í klóru tala nú ekki um ef við verðum 3 í herbergi!

     

Skrifa ummæli

<< Home