Velkomin í stuðið

Gat ekki sagt nafnið mitt þegar ég var lítil og kaus því að kalla mig Bakkabakki

þriðjudagur, ágúst 16, 2005

Ítalska mafían

Ég var á gangi í grenjandi rigningu áðan niður í bæ þegar
bílhurð opnaðist og kallað var út help I´m lost. Ég stoppaði og út kom Ítali sem líktist meira Osama bin Laden og spurði hvort ég vildi ekki fá addressuna hjá sér svo ég gæti sent honum póstkort. Greinilega ekki lengur tíndur. Ég sagði við hann að ég væri að drífa mig og á meðan krotaði hann addressuna sína á blað og lét mig hafa. Hann spurði hvort ég vildi ekki kíkja á sig í vikunni eða koma til Ítalíu í heimsókn til sín. Ég vissi ekki í hvern fjandan ég var komin í þar sem ég ætlaði nú bara að vísa honum til vegar. Þannig að ég hljóp frá honum áður en hann náði að faðma mig og kyssa mig á báðar kinnarnar.
Best að rjúka til að kaupa póstkort ; ) hehehehe.....
Fáranlegt alveg hreint.

Svo styttist í:
-Íslandsmótið í blaki sem er á laugardaginn. Vona að það verði rigning og rok eins og í fyrra (sagt með kaldhæðni)
-Hittingur hjá bekknum mínum sem er á föstudaginn
-Menningarnótt sem er á laugardaginn
-Nígeríu ferðina sem verður um mánaðarmótin ágúst-sept. Hlakka mest til flugsins sem er ekki nema 12 tíma flug frá London (sagt líka með kaldhæðni)

6 Comments:

  • At 16 ágúst, 2005 19:38, Anonymous Nafnlaus said…

    Bíddu bíddu....! Hvað er kella að fara að gera til Nígeríu?

     
  • At 17 ágúst, 2005 00:53, Anonymous Nafnlaus said…

    Keppa kella!!

     
  • At 17 ágúst, 2005 10:11, Anonymous Nafnlaus said…

    Vá Lóa... soltið á eftir. Meira að segja ég vissi um þetta.

    En þetta er bara snilld með Ítalann :-) getum við ekki farið í svona vinkonuferð og fengið að gista hjá kauða?

    Kata

     
  • At 17 ágúst, 2005 11:46, Anonymous Nafnlaus said…

    Já Lóa situr greinilega e-ð aftarlega á merinni.
    Pottþétt getum við farið í konuferð. Hann allavega tók vel í það þegar ég sagðist koma með Grjóna með mér í heimsókn til hans. Hann er með e-r aukaherbergi ;)

     
  • At 17 ágúst, 2005 12:05, Anonymous Nafnlaus said…

    'Heyrðu nei ég fattaði þetta um leið og ég var búin að setja komment! Ég heyri bara alltaf Birnu tala um Afríku og ég var ekkert að spá í að Nígería væri í Afríku!

     
  • At 17 ágúst, 2005 21:16, Anonymous Nafnlaus said…

    Ok.. þú færð smá séns Lóa ;)

     

Skrifa ummæli

<< Home