Velkomin í stuðið

Gat ekki sagt nafnið mitt þegar ég var lítil og kaus því að kalla mig Bakkabakki

mánudagur, desember 19, 2005

Klikk

Ég er alltaf að sjá það betur og betur hvað ég á klikkaða vinkonu. Kata hringdi í mig alveg á perunni á laugardagsnóttina þegar hún var á Sálarballi úr símanum hans Konna frænda. Svo heyrðist í Konna hlátur og e-ð nöldur. Ég er ekki alveg að fatta tilganginn með þessu símtali hjá þeim. Kata á það nú til að tala hátt, hratt og mikið þegar hún er edrú EN þegar hún er drukkin þá talar hún hátt, hratt og mikið. Ég er ekki viss um að hún hafi heyrt þegar ég reyndi að svara spurningunum hennar þar sem hún talaði non-stop. Litla músin..... hún er snillingur. Svo er hún alltaf að reyna að segja að hún sé ekkert klikkuð nema hún sé með mér. Þarna var ég nú ekki með henni en hún hljómaði ansi klikkuð. Spurning um að minnka þetta hvíta Kata ;)

6 Comments:

  • At 19 desember, 2005 18:20, Anonymous Nafnlaus said…

    Kata er klikkuð en ég held nú að hún hafi ekki verið á perunni þegar hún hringdi í þig.

     
  • At 20 desember, 2005 10:45, Anonymous Nafnlaus said…

    Hahahaha, ótrúlegt en satt þá var ég frekar lítið full!! Þú og þessi snar bilaði frændi þinn hafið svona áhrif á mig. Þú hafðir sko gaman að þessu þar sem þú hlóst stanslaust :-)
    Svona hugsum við alltaf til þín þegar við erum að djamma... þú verður bara að vera með okkur næst. Það verður sko crasy :-)

    Var annars að heyra að Konni væri hættur að drekka... sénsinn!!!

     
  • At 20 desember, 2005 11:23, Anonymous Nafnlaus said…

    Hvaða líkur eru á því að Konni hætti að drekka þegar hann er svona nýbyrjaður?? Ekki neinn.... Djamm um jólin og Konni líka :)

     
  • At 20 desember, 2005 11:43, Anonymous Nafnlaus said…

    Já það verður snilld... þriggjamannapartý :-) og hann sem hefur aldrei séð þig fulla... mohhahaahaahahh

    Kata

     
  • At 20 desember, 2005 21:38, Anonymous Nafnlaus said…

    Ekki veit ég hvar Kata heyrði að ég væri hættur að drekka en hún hefur mjög góða heimildamenn. Þetta er alveg rétt, ég er hættur!!!

     
  • At 21 desember, 2005 09:58, Anonymous Nafnlaus said…

    Já ég hef svo sannarlega góða heimildarmenn ;-) Fylgist náið með þér.... en þú getur nú gert undantekningu og sullað með mér og Karen svona einu sinni!!

    K.Há

     

Skrifa ummæli

<< Home