Nakti nágranninn
Mætti á Eyrina á föstudaginn og við gellurnar tóku eina æfingu fyrir skemmtiatriðið okkar í brúðkaupinu. Þegar æfingunni var lokið kíkti Kata út um gluggan og kallaði svo á okkur, eftir að hafa fylgst með honum ein í 10 mínútur, nauj það er gaur að afklæðast í húsinu á móti. Við rukum út í glugga og ákvaðum að fylgjast aðeins með. Hann virtist vera að velja sér skyrtu, pottþétt að fara á djammið og konan hans kom svo til að hjálpa honum. Svo þegar ég fattaði hver þetta voru ákvað ég að senda konunni hans sms úr Kötu síma sem stóð: Ég myndi frekar velja ljósu skyrtuna heldur en þessa dökku. Um leið og þau fengu sms-ið dróg strákurinn fyrir gluggan hjá sér og stofugluggan líka, hægt og rólega. Ótrúlega fyndið!!!
Á laugardeginum var svo brúðkaup Lóu og Jóhanns sem heppnaðist vel í alla staði. Við vorum mættar allar gellurnar og makar okkar og skemmtum okkur og öðrum mjög vel. Eftir veisluna var svo haldið í þrusupartý til Birnu. Það var sko djammað og ég ætla að leyfa mér að setja link á myndirnar frá bæði Kötu og Birnu. Sumar hverjar eru ekki fyrir viðkvæma!!
http://photos.heremy.com/katalitla/album/89854
http://www.picturetrail.com/gallery/view?p=999&uid=3790629&gid=7828755&
Ég held að þessar myndir gefi fólki ákveðna hugmynd um hvernig djammið fór fram hjá okkur þetta kvöld :) Allavega skemmti ég mér alveg trefilli vel og hugsa að það verði seint hægt að toppa þetta.

2 Comments:
At 26 júlí, 2005 10:07,
Nafnlaus said…
Þvílík gargandi snilld.... bæði nakti maðurinn í glugganum og svo brúðkaupið og partýið sem því fylgdi. Þetta verður ekki toppað og myndirnar eru bara flottar :-)
Takk fyrir mig!!!!
Kata
At 26 júlí, 2005 13:48,
Nafnlaus said…
Það má lengi dæma um það hvort að þessar myndir séu flottar sem þú settir inn. Allavega eru sumar hverjar kannski svolítið umdeilanlegar...
Skrifa ummæli
<< Home