Velkomin í stuðið

Gat ekki sagt nafnið mitt þegar ég var lítil og kaus því að kalla mig Bakkabakki

fimmtudagur, apríl 14, 2005

Guð er félagsvera

Vá ég var aðeins að hlusta á Lindina í gær því það var ekkert annað í útvarpinu. Já Lindin getur verið skárri en ekki neitt. Allavega þá var e-r kall að tala um guð og jesú og sagði að guð banakar á dyrnar hjá fólki og vill komast inn. Ef þið helypið honum inn þá lagar hann til hjá ykkur og tekur m.a. rykið undan sófanum ykkar. Sérdeilis pýðilegt að hafa einn svona sem lagar til án þess að hann þvælist fyrir manni. En það hefur allavega ekki gerst ennþá. Kannski ég ætti að opna hurðina reglulega og sjá hvort að rykið fari ekki undan rúminu mínu einn daginn. Svo talaði kallinn líka um það að ef þið0 væruð fílkar ættu þið ekki að reyna að hætta því fyrr en þið væruð búin að taka á móti jesú því hann er besti læknirinn.
Það er bara jákvætt að taka á móti guði og jesú, ekki satt??? Þá þarf maður ekki að laga til og þá losnar maður við alla fíkn.
Annars var síðasti skóladagurinn í dag og hann endaði með kökum og gotteríi. Ekki slæmt það nema ég borðaði kannski aðeins of mikið og hefði þurft að leggja mig en enginn tími í það núna.
Það er búið að draga í bikarnum og við fengum Þrótt-Rvk í undanúrslitum. Leikurinn er kl. 13.30 í KA og hvet alla til að mæta og hvetja okkur! Sjáumst

4 Comments:

  • At 16 apríl, 2005 21:44, Anonymous Nafnlaus said…

    Hæ! eruð þið búnar að fá myndirnar sem voru teknar eftir leikinn okkar? :) -María ÍS

     
  • At 16 apríl, 2005 21:44, Anonymous Nafnlaus said…

    Hæ! eruð þið búnar að fá myndirnar sem voru teknar eftir leikinn okkar? :) -María ÍS

     
  • At 17 apríl, 2005 18:12, Anonymous Nafnlaus said…

    Já takk kærlega fyrir myndirnar!! Þær eru sko komnar inn á heimasíðu KA :)

     
  • At 17 apríl, 2005 22:36, Anonymous Nafnlaus said…

    ok, flott! Og leitt með leikinn, ég hefði viljað sjá ykkur í úrslitum ;)

     

Skrifa ummæli

<< Home