Velkomin í stuðið

Gat ekki sagt nafnið mitt þegar ég var lítil og kaus því að kalla mig Bakkabakki

fimmtudagur, júní 24, 2004

Djamm djamm djamm

Við stelpurnar í bekknum erum að fara að hittast í kvöld eða þær sem eru staddar í borginni. Við ætlum að grilla og svo ætla ég að plata stelpurnar til að fá sér nokkra kalda með mér. Þess þarf alltaf þegar menn eru að grilla.
Svo er ég alveg til í djamm á fös ef e-r hefur áhuga. Hafið samband. Vá! fólk gæti farið að halda að ég væri e-r svaka bytta! Það er svona þegar maður er að vinna aðra hverja helgi þá langar mann til að njóta helgarinnar þegar maður á frí. Svo er ég og Lóa að reyna að skipuleggja djamm á laugardagskvöld. Kemur í ljós hvernig það fer.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home